Það kom að því að það var rekið á eftir mér svo ég þarf að skrifa hér en vandinn er að ég veit aldrei hvað ég að skrifa hér nema að ég viti ekki hvað ég á að skrifa hérna....
en allavega ég skal reyna að setja eitthvað hérna svo það sé lestrarhæft.
Ég fór heim í sveitina síðustu helgina í febrúar og þá hefði ég ekki farið síðan um áramótin

ég ætti að fara heim en þegar maður er svona upptekin manneskja þá er erfitt að finna tíma fyrir allt, ég þarf nátla að sinna skólanum og vinnuni og þar fyrir utan þarf maður að sinna heimilinu og kærastanum.
Fyrstu helgina í mars fór ég til Keflavíkur og Garðs hitti þar syskini, foreldra og fósturforeldra Binna og lika nokkra vini hans og það var geiðveik helgi en endaði með því að vera veðurtept í borginni og ég gisti hjá afa og ömmu og Binni og Ási gistu hjá Gesti í Keflavík, á sunnudeginum lenti ég upp á sjúkrahúsi í borginni þar sem þessir verkir sem ég er búin að vera með siðan um miðjan Janúar voru verri en nokkru sinni fyrr og auk þessa verkja missti ég andan og allan mátt í fótunum, það var tekið blóðprufa og þvagprufa en mér var bara gefið verkjalyf og send burt

.
Vikan eftir það var bara verkjalaus og ég var bara í skólanum eins og alla hina virku dagana en laugardaginn 14 mars lenti ég upp á sjúkrahúsi....aftur og þá var ákveðið að ég myndi fara í fulla ransókn til að komast hvaða verkir þetta eru fyrir fullt og allt. Ég fór í viðtal og skoðun hjá doksa hérna á Ak og niðusturstaðan var sú að ég er með Ristilkrampa og þarf sko að taka mataræðið mitt í gegn....fór á netið og fann þar lista yfir mat sem ég á að forðast og borða hóflega af og það var kaffi, spergilkál, baunir, sykurneysla(nammi), áfengi, blómkál, mjólk, sterk krydd. Auk þess er streita lika ástæða fyrir ristilkrampa. Eftir að hafa breytt matnum mínum þá hef ég ekki fengið krampa siðan eða ekki nema mjög væga.
Planið framundan er svo að vera í skólanum og vinna með, páskafríið byrjar 4 apríl og endar 14 apríl, það á eftir að plana páskafríið nema að það er alveg ákveðið að mæta í skírn hjá krílrík hallgrímsson en hvenær eða hvernig ég fer suður er eitt af þvi sem þarf að hugsa og plana, en það er nú samt annað hvort ég fari með pabba og mömmu eða að Binni fari með mér og verði með mér fyrir sunnan, það kemur í ljós

. Svo er bara skóli þanga til 2 maí þá byrja prófin og ég fer í 2 próf þessa önnina....12 og 11 maí. Er þá að spá að fara suður fyrstu helgina í maí til að hjálpa mömmu Binna að flytja en þetta kemur allt í ljós þegar nær dregur

ætla að láta þetta duga þanga til næst, ætla að fara í ljós og fá mér að borða
kveð að sinni
Eva has left the building